Helgi Björns kom niður stigann sem leynigestur og tók þetta klassíska lag. Nú er þetta lag í uppáhaldi hjá mörgum landsmönnum og frábært að heyra það sungið af meistaranum sjálfum.
-----------------------------------------
Það hringir enginn inn jólin eins og Björgvin Halldórsson en þessi árlegi stórviðburður er orðinn ómissandi partur af jólahátíð landsmanna. Síðast seldust upp fimm tónleikar og færri komust að en vildu.
Gestir Björgvins 2019 eru:
Auður
Birgitta Haukdal
Friðrik Ómar
Gissur Páll
Jón Jónsson
Svala
Þóra Einarsdóttir
GDRN
Einnig kemur fram sigurvegari Jólastjörnunnar 2019 en ár hvert er einn ungur og efnilegur söngvari valinn í þáttunum Leitin að Jólastjörnunni, sem verða sýndir í Sjónvarpi Símans. Nánari upplýsingar um Jólastjörnuna á jolagestir.is/jolastjarnan
Ennfremur stíga á svið stórsveit Jólagesta skipuð landsliði hljóðfæraleikara undir stjórn Þóris Baldurssonar, strengjasveit Jólagesta undir stjórn Geirþrúðar Ásu Guðjónsdóttur, karlakórinn Þrestir undir stjórn Árna Heiðars Karlssonar, Reykjavík Gospel Company undir stjórn Óskars Einarssonar og Barnakór Kársnesskóla undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur.
jolagestir.is
senalive.is/jolagestir
#jólagestir2019
Ещё видео!