Af diskinum Á hverjum degi. Þar flytur Kór Akraneskirkju útsetningar Gunnars Gunnarssonar
Hollenskt lag
Texti: Frostenson - Sigurbjörn Einarsson
Píanó: Gunnar Gunnarsson
Kontrabassi: Tómas R. Einarsson
Gítar: Örn Arnarson
Stjórnandi: Sveinn Arnar Sæmundsson
Þú, mikli Guð, ert með oss á jörðu,
miskunn þín nær en geisli á kinn.
Eins og vér finnum andvara morguns,
eins skynjar hjartað kærleik þinn.
Í dagsins iðu, götunnar glaumi,
greinum vér þig með ljós þitt og frið.
Hvar sem ein bæn er beðin í hljóði,
beygir þú kné við mannsins hlið.
Hvar sem er unnið, hugur þinn starfar,
hús vor og tæki eru þín verk.
Þú vilt vér teljum vort það, sem gefur
viskan þín rík og höndin sterk.
Djúp er þín lind, sem lífgar og nærir,
lófinn þinn stór, vort eilífa hlé.
Gjör þú oss, Kristur, Guðs sonur góði,
greinar á þínu lífsins tré.
![](https://i.ytimg.com/vi/AsK9VzMRtfA/maxresdefault.jpg)