37. N1 mót KA var haldið á KA svæðinu dagana 5.-8. júlí 2023. Mótið er orðið gríðarlega stórt og flott en alls kepptu 202 lið í 13 deildum. Keppendur voru rúmlega 2.000 en alls voru leiknir 911 leikir á mótinu og heldur betur mikið fjör á Akureyri á meðan mótinu stóð.
Mótið heppnaðist ákaflega vel, veðrið lék við mótsgesti alla fjóra keppnisdagana og ríkti svo sannarlega mikil gleði mótssvæðinu. Rétt eins og undanfarin ár sýndi KA-TV vel frá mótinu, allir leikir á velli 4 voru sýndir og þeim lýst af kostgæfni.
Myndband N1 mótsins í ár er unnið af Tjörva Jónssyni.
Hér má sjá yfirlit yfir sigurvegara mótsins:
Sveinsbikarinn: Fylkir
Háttvísi og prúðmennskuverðlaun Sjóvá: Undri
Argentíska deildin: Stjarnan 1
Brasilíska deildin: FH 2
Chile deildin: Grótta Pétur Árna
Danska deildin: KA Ívar Örn
Enska deildin: Keflavík Magnús Þór
Franska deildin: HK Hassan Jalloh
Gríska deildin: Fylkir Ólafur Kristófer
Hollenska deildin: Fjarðabyggð 2
Íslenska deildin: Þór 4
Japanska deildin: KF/Dalvík 2
Kólumbíska deildin: Stjarnan 10
Mexíkóska deildin: ÍR 4
Norska deildin: Þróttur 9
Ещё видео!