Þessi kafli um áfellis dóma kemur í beinu framhaldi af fjallræðunni og ábendingum Jesú að safna ekki auði sem eyðist. Tengingin við textann í dag er mikilvæg. Það er auðvelt fyrir þann sem á lítið sem ekkert að gagnrýna þá sem eru ríkir og eins geta þeir sem eru ábyrgðarfullir og vel stöndugir gert lítið úr orðum Jesú sem sagði að við ættum ekki að hafa áhyggjur af því hvað eigi að borða, drekka og hverju eigi að klæðast. Þar sem enginn lifir full- komlega í trú þá bendir Jesús á að þessi gagnrýni eigi ekki rétt á sér..
Heima með presti 23. júní 2024, þema: Samfélag syndaranna, 4 sd eftir þrenningarhátíð, Lexía: Sak 7:8-10, Pistill: Róm 14:1-6, Guðspjall: Matt 7:1-5, Dæmið ekki, Flísin og bjálkinn, Matt 6:31-32, Jóh 7:24, Matt 9:13, Hós 6:6, Lúk 11:23, 1 Kor 6:1-8, Mrk 4:24, Lúk 6:38 1 Kor 4:1-5, Jóh 16:9, Gerð myndbands: Bryndís Svavarsdóttir
![](https://i.ytimg.com/vi/I_YdoW8voxw/mqdefault.jpg)