Sexan stuttmyndasamkeppni er nýtt fræðsluverkefni Neyðarlínunnar um stafrænt ofbeldi fyrir nemendur í 7.bekkjum grunnskóla landsins. Nemendur fengu fræðslu um hvernig stafrænt ofbeldi birtist ungu fólki og áttu svo að búa til stuttmynd um eitt af fjórum viðfangsefnum: tælingu, samþykki, slagsmál eða nektarmynd.
Þetta er í fyrsta skipti sem keppnin er haldin en þátttaka fór fram úr björtustu vonum. Sigurvegarar keppninnar voru nemendur úr 7. bekk í Selásskóla, ungmenni í 7.-SB í Heiðarskóla, Reykjanesbæ hlutu annað sæti en 7.bekkur í Suðurhlíðarskóla hlutu þriðja sætið. Frekari upplýsingar um keppnina má finna á 112.is/sexan en vinningsmyndirnar þrjár eru aðgengilegar á vef UngRÚV.
Ещё видео!