33. N1 mót KA var haldið á KA svæðinu dagana 3. júlí - 6. júlí 2019. Um er að ræða stærsta mótið hingað til en alls var keppt í 8 deildum, keppendur um 2.000, 204 lið frá 49 félögum og alls 888 leikir sem gera 26.640 mínútur af fótbolta.
Mótið heppnaðist mjög vel og ríkti mikil gleði á mótinu og ekki skemmdi fyrir að veðrið var mjög gott þegar leið á mótið. KA-TV sýndi alla leikina á velli 8 (N1 völlurinn) sem gera alls 76 leiki í beinni og allir með lýsendum.
Myndband mótsins í ár er unnið af GS Production.
Hér má sjá yfirlit yfir sigurvegara
Argentíska deildin: KA 1
Brasilíska deildin: 07 Rush WI
Chile deildin: Snæfellsnes 1
Danska deildin: Grótta 2
Enska deildin: Breiðablik 8
Franska deildin: Valur 6
Gríska deildin: Stjarnan 7
Hollenska deildin: KFR 3
Stuðboltar mótsins: Þróttur Reykjavík
Háttvísisverðlaun Sjóvá: Sindri/Neisti
Sveinsbikarinn: Vestri (háttvísi innan sem utan vallar)
Skotfastasti leikmaður: Andri Valur Finnbogason - KA 1 (84 km/klst)
Menn leiksins í úrslitaleik Argentísku deildarinnar:
Óskar Arnór Einarsson – KA 1
Alexander - Valur 1
Menn leiksins í úrslitaleik Brasilísku deildarinnar:
Frosti Björn Björnsson – Stjarnan 2
Emmeth – Rush USA
Menn leiksins í úrslitaleik Chile deildarinnar:
ÍBV – Morgan Goði Garner
Snæfellsnes – Asmer Begic
Menn leiksins í úrslitaleik Dönsku deildarinnar:
Sveinbjörn Jóhannsson – Stjarnan
Gunnar Róbertsson – Grótta
Menn leiksins í úrslitaleik Ensku deildarinnar:
Baldur – Breiðablik
Máni – Stjarnan
Menn leiksins í úrslitaleik Frönsku deildarinnar:
Anton Máni – Valur
Aron Matus – KA
Menn leiksins í úrslitaleik Grísku deildarinnar:
Viktor Kári Jóhannsson – Stjarnan
Sigurjón Gunnarsson – Þróttur R
Menn leiksins í úrslitaleik Hollensku deildarinnar:
Ívar Ilur Birkisson – KFR 3
Óðinn Andri Gunnarsson – Stjarnan 8
Ещё видео!