Í tilefni Menningarminjadaga Evrópu sem að þessu sinni eru helgaðir „leiðum, samskiptum og tengingum“ býður Gunnarsstofnun til lítillar málstofu á Skriðuklaustri um fornar ferðaleiðir til og frá Fljótsdal sem tengjast klaustrinu á Skriðu sem starfrækt var á 16. öld. Steinunn Kristjánsdóttir, doktor í fornleifafræði og stjórnandi fornleifarannsóknarinnar á Skriðuklaustri, mun segja frá rannsóknum sínum á þessum leiðum og tengingum klaustursins sem hún rekur m.a. í bók sinni Sagan um klaustrið á Skriðu. Skúli Björn Gunnarsson, forstöðumaður Gunnarsstofnunar, mun tala um leiðangra sem hann hefur farið til að staðsetja annars vegar leiðina suður yfir jökul til verstöðvarinnar Hálsahafnar í Suðursveit og til verslunarstaðarins Gautavíkur í Berufirði.
Öll velkomin og vonast eftir frjórri umræðu um fornar leiðir sem tengdu byggðalög og hvernig við getum varðveitt minjar og upplýsingar um þær.
Frítt er inn á meðan húsrúm leyfir og viðburðirnn er í streymi.
Ещё видео!